Mikið er glöð og þakklát að þessi vegferð sé hafin. TAKK fyrir að hoppa á vagninn með mér! Ég er sjálf enn að læra inn á svona umhverfi en það eru svo margir spennandi möguleikar til að tengjast ykkur. Ég tek glöð við ábendingum, hugmyndum og óskum.
Eins og ég set þetta upp er hægt að hlusta á alla tónlistina sem er hérna inni núna án þess að vera í áskrift. Þetta eru plötur og upptökur sem ég á sjálf útgáfuréttinn af og allt nú þegar á almennum streymisveitum. Nema ég hef laumað inn einu aukalagi á plötuna Töfrabörn - lagið Tregagás gjöriði svo vel.
Þetta með útgáfuréttinn skýrir af hverju það vantar sumt hérna inn. Jólalögin vantar ennþá líka. Hver veit nema ég hendi bara í nýjar útgáfur af gömlum lögum fljótlega. Með tíð og tíma dreymir mig um að gera svæðið þannig að það sé sannarlega þess virði að vera hérna inni með mér.
Með pósti dagsins fylgir lifandi flutningur af lagi sem ég er að vinna í að taka upp og kemur út síðar á þessu ári. Ég þakka heitir það - og ég þakka enn og aftur fyrir ykkur. Góða helgi,
Ragga
Hello everyone - I am so happy and grateful to begin this journey. Thank you for joining me - I am still learning how to use a platform like this but the possibilites are endless. If you have any wishes, requests or questions feel free to contact me.
You can listen to all the music in here without a paid membership. Some songs are missing but that is because I do not own the rights to everything I have released through my 25 years as a recording artist. All this music is already on all streaming platforms besides an unreleased bonus track from my album Töfrabörn called Tregagás - just for you my friends. ;-)
I am also sharing with you a song today about gratitude - a video from Youtube. I am currently working on a recorded version of it - to be released later this year.
Thank you for being with me and have a wonderful weekend everyone. Warm regards, Ragga