Sorry, no English this time, but do check out our cool friends that will play with us on June 1st in Harpa:
//
Eins og mörg ykkar vitið erum við að halda tónleika í Norðurljósasal Hörpu þann 1. júní, og erum orðnir gríðarspenntir, búnir að ákveða settlistann í grófum dráttum og svona. Hér má enn finna miða á herlegheitin. Bestu sætunum fer fækkandi.
„og vinir“ í yfirskrift tónleikanna kemur til af því að við drögum með okkur á svið nokkra frábæra vini og kollega sem við höfum búið til og erum að búa til tónlist með, en fáum of sjaldan tækifæri til að deila sviði með. Hér í öfugri stafrófsröð:
Kött Grá Pje
Þegar hleypur hundur í Mosesmenn smella þeir Kött Grá Pje vini sínum á fóninn og hans Dulræna atferlismeðferð hringir á tíkarlegan bíl fyrir hvutta. Þeir Fonetik Simbol mögnuðu gæludýran seið á þessari geggjuðu plötu sem verður vitnað í á Norðurljósatónleikunum, en auk þess kveður Kött nýjar rímur með Moses Hightower. Mjá!
GDRN
GDRN er listamannsnafn Gu D. Rú Nar, en fljótlega eftir að hún vann hug og eyru þjóðarinnar og fór að huga að sinni annarri breiðskífu lágu leiðir hennar og meðlima Moses Hightower saman. Þeir hafa spilað með henni á upptökum og sviði, ýmist sem Moses eða ekki, og með hljómsveitinni hefur hún samið og gefið út lögin Mar og Springur út, sem verða að sjálfsögðu tekin í Norðurljósum ásamt fleiru úr hennar smiðju.
Friðrik Dór
Friðrik Dór er efnilegur Hafnfirðingur sem er kannski best þekktur sem trommarinn í Fendrix, en er nýlega stiginn fram með frumsamda tónlist. Hann er lunkinn textahöfundur og ákvað að frumflytja með Moses nýtt lag um bekkjarmót og jarðarfarir í Norðurljósum, auk þess að syngja sitt prívat-efni.
Cell7
Cell7 aka Ragna Kjartansdóttir er sérlegur perluvinur Moses Hightower til margra ára – fyrst átrúnaðargoð og síðar samverkakona í tónlist, nágranni í Hollandi, Vesturbæ og í stúdíóinu í Skútuvogi. Mosesmenn hafa aldrei verið svalari en þegar þeir voru í Cell7 bandinu fyrir rúmum áratug, en síðari tíma samstarfsafurðin Thinking Hard verður að sjálfsögðu á dagskránni 1. júní ásamt Cell7 slögurum og Mosesjukki.
